Breyting á vörum og frátaka

Öll mál gefin upp sem innanmál hurðagats og sem breidd og hæð. Vörur REK eru í stanslausri þróun. Því áskiljum við okkur rétt til að breyta hönnun og útfærslu á vörum okkar og efnisvali, hvenær sem er og án fyrirvara. Við afhendingu er pöntuð vara alltaf í samræmi við þá framleiðslu staðla sem í gildi voru þegar varan var pöntuð. Þannig eru vörur sem pantaðar eru á mismunandi tímum ekki endilega framleiddar eftir sömu stöðlum og því ekki endilega nákvæmlega eins. Ef þú hefur áður pantað hjá okkur og vilt samræmi við nýju pöntunina, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst á rek@rek.is eða taktu fram pöntunarnúmer í athugasemdardálki í pantana ferlinu.

Ógilding

Sem einstaklingur (neytandi) hefur þú 14 daga rétt til að falla frá samningi um kaup á vörum á netinu. Í þessum skilmálum er vikið frá þeim rétti á eftirfarandi grundvelli: Hjá REK eru allar vörur sérsmíðaðar samkvæmt einstaklingsbundnum þörfum og óskum kaupanda. Vörurnar eru framleiddar út frá málum og upplýsingum sem hver kaupandi veitir. Til hagsbóta fyrir kaupanda hefur REK innleitt sjálfvirkt pöntunarkerfi sem miðar að sem stystum afhendingartíma og hagstæðu verði. Við staðfestingu pöntunar og lokinni greiðslu hefst framleiðsla sjálfkrafa án tafar. Af þessum ástæðum samþykkir kaupandi að falla frá 14 daga rétti til að hætta við kaupin. Óski kaupandi eftir breytingum á pöntun skal slíkt tilkynnt innan 24 klukkustunda frá því að pöntun er lokið.

Verð

Á rek.is eru öll verð gefin upp í ISK (íslenskum krónum) með virðisaukaskatti, en án sendingarkostnaðar nema annað sé sérstaklega tekið fram. Það verð sem birtist við pöntun gildir og telst vera endanlegt verð á þeim tíma sem pöntun er staðfest.

Allir samningar eru gerðir á íslensku þegar þú verslar hjá REK. Óski viðskiptavinur eftir afriti af staðfestingu pöntunar er hægt að senda beiðni á rek@rek.is.